
„Þetta er sannkölluð uppskeruhátíð“
Viðtal tekið á Skrúfudaginn við Aron Víði Snædal, fjórða árs nema í vélstjórn við Vélskóla Íslands
Skrúfudagurinn, árlegur kynningardagur nemenda í Véltækni- og Skipstjórnarskóla Tækniskólans, fór fram laugardaginn 29. mars síðastliðinn í húsnæði skólans við Háteigsveg. Gestir og gangandi á öllum aldri komu við og kynntu sér fjölbreytta og spennandi starfsemi skólans.
Á staðnum var hægt að skoða aðstöðu, hitta nemendur og starfsfólk og prófa ýmis verkfæri og tæki. Boðið var upp á kynningar frá fjölmörgum fyrirtækjum og stofnunum, auk þess sem fulltrúar nokkurra annarra skóla tóku þátt og námsráðgjafi var til staðar til að svara fyrirspurnum.
Aron Víðir Snædal, fjórða árs nemi í vélstjórn og formaður skólafélags Vélskóla Íslands, segir að um sé að ræða sannkallaðan uppskerudag fyrir nemendur skólans.
„Þetta er klárlega hápunktur vetrarins og svona ákveðin uppskeruhátíð fyrir alla þá vinnu sem lögð hefur verið í námið og undirbúninginn,“ segir Aron. „Við höfum verið að skipuleggja þetta mánuðum saman og það hefur tekið á, sérstaklega síðustu dagana þar sem við vorum hér fram eftir öllum kvöldum að undirbúa.“
Í ár var sérstök áhersla lögð á smiðjur og voru fjölmörg fyrirtæki mætt til að kynna starfsemi sína. Um leið gafst þeim þannig tækifæri til að hitta nemendur. „Þetta er frábært tækifæri fyrir þau til að ná sér í nema og skapa tengsl við framtíðarfólk í faginu,“ segir Aron.
Nemendur gáfu út glæsilegt eintak af Skrúfunni, blað sem er fyrir löngu orðinn fastur liður í tengslum við þessa uppskeruhátíð. Blaðið er mjög efnismikið og veglegt. „Við ákváðum að leggja áherslu á að gera blaðið aðgengilegt og áhugavert – ekki bara fylla það af auglýsingum heldur setja inn efni sem fólk getur sökkt sér ofan í,“ segir hann. Útkoman var um 60 blaðsíðna rit sem dreift verður til allra á póstlista VM og í útgerðir víða um land. Hann viðurkennir að þetta hafi verið verðugt verkefni.
„Við sátum sveittir langt fram eftir kvöldum við að selja auglýsingar, skrifa greinar og hanna útlit blaðsins. Þetta var krefjandi en mjög skemmtilegt ferli. Maður lærir alveg helling af þessu – þetta er eitthvað sem ég mun taka með mér út í lífið,“ segir hann en bætir við að hann sé svolítið feginn að þurfa ekki að ganga í gegnum þetta aftur í bráð.
Aron er að ljúka náminu nú í vor og stefnir á að taka sveinspróf í vélvirkjun í september en hann gerir ráð fyrir að undirbúa sig hjá HD í Kópavogi, þar sem hann hefur starfað að undanförnu undanfarin ár. Aron, sem er alinn upp á Jökuldal, hefur hins vegar önnur plön til lengri tíma litið. „Stefnan er klárlega sett á að flytja aftur austur – helst á Reyðarfjörð. Þar langar mig að koma mér fyrir og vinna við fagið.“
„Fólk spyr mig stundum hvers vegna ég sé að læra vélstjórn – alinn upp í sveit þar sem enginn sér sjóinn. En þetta hefur alltaf verið í mér. Ég ólst upp í kringum traktora, hjól og alls kyns vélar, og hef alltaf haft gaman af að grúska,“ bætir hann við.
Að mati Arons er námið fjölbreytt og krefjandi – og hentar fleirum en bara þeim sem ætla sér út á sjó. „Fyrstu þrjú árin voru sérstaklega skemmtileg – mikið verklegt og fjölbreytt. Síðasta árið er meira bóklegt, en ef viljinn er fyrir hendi þá er þetta mjög gefandi nám,“ segir hann. „Ég myndi hiklaust mæla með því – jafnvel þótt þú ætlir aldrei á sjó.“
Góðir starfsmöguleikar
Hann segir að góðir starfsmöguleikar fylgi þessu námi. „Flestir í útkriftarhópnum virðast þegar hafa tryggt sér vinnu – hvort sem það er í smiðjum eða á sjó. „Það eru mjög fáir í okkar hópi sem eru ekki með einhverja vinnu í höndunum. Og það sýnir bara að eftirspurnin er til staðar og námið nýtist vel.“
VM er að var að venju einn af bakhjörlum dagsins. Nánar verður fjallað um Skrúfudaginn í næsta tölublaði Tímarits VM. Þar verður rætt við Víglund Laxdal Sverrisson skólastjóra.