Auglýsingar og styrkir
VM hefur markað sér ákveðna stefnu varðandi auglýsingar og styrki.
Ef ástæða þykir til auglýsir VM í fjölmiðlum, skólablöðum, fagtímaritum, félagsritum og víðar.
VM auglýsir ekki í:
- blöðum sem stjórnmálaflokkar eða landshlutafélög og deildir tengdar þeim gefa út.
- blöðum og öðrum miðlum fyrirtækja, félaga og stofnanna sem uppvís hafa orðið af að birta auglýsingar sem innihalda boðskap, í orðum eða myndum, sem brýtur gegn almennri velsæmiskennd og stangast á við viðtekin samfélagsleg gildi.
Fyrir allar styrktar- og auglýsingabeiðnir þarf að útfylla þar til gert umsóknareyðublað.
Logo
VM auglýsir að lágmarki með lógói félagsins.