
Skrúfan er komin út – Skrúfudagurinn um helgina
Skrúfan, blað 4. stigs útskriftarnefma við Véltækniskólann 2025 er komið út. Blaðið, sem er 64 síður, er stútfullt af spennandi og skemmtilegu efni. Í blaðinu eru ýmis viðtöl, umfjallanir, greinar og jafnvel þrautir, sem hægt er að reyna sig við. VM er á meðal þeirra fyrirtækja sem auglýsa í blaðinu.
Skrúfudagurinn 2025, árlegur kynningardagur nemenda í vélstjórn og skipstjórn í Tækniskólanum við Háteigsveg, gamla Sjómannaskólanum í Reykjavík, verður haldinn 29. mars.
Dagskrá hefst klukkan 13:00.
Kaffisala verður að vanda á staðnum.
Allir eru velkomnir að kynna sér starfsemi skólans.
Blaðið má lesa hér: