Öryggi sjómanna

Fjórar stuttar fræðslumyndir um öryggi sjómanna

Á undanförnum árum hefur orðið mikil bragarbót á öryggi sjómanna. Alvarlegum slysum hefur fækkað og banaslys eru orðin afar fátíð. Aukin meðvitund sjómanna um forvarnir og eigið öryggi hefur eflst og styrkst með aukinni fræðslu og betri öryggismenningu á sjó.

Markmið nýrra fræðslumynda Öryggisáætlunar sjófarenda er að fræða sjómenn og auka öryggi þeirra enn betur. Þau fjalla um eftirtalda þætti við vinnu um borð í skipum: meðhöndlun hættulegra efna, vinnu í lokuðum rýmum, vinnu í mikilli hæð og undirbúning sjóferðar.

Fræðslumyndirnar er hægt að nálgast hérna:

Fræðslumyndunum er ætlað að hvetja sjómenn til að gæta ávallt fyllstu varúðar og fara í hvívetna eftir reglum og leiðbeiningum við störf sín. Þessum stuttu myndum er ætlað að stuðla að frekari fækkun á óhöppum og slysum til sjós sem og að tryggja skjót og rétt viðbrögð ef slys ber að höndum.

Sjónvarpsstöðin N4 vann myndböndin í samvinnu við Slysavarnaskóla sjómanna, Samgöngustofu og Siglingaráð / Verkefnisstjórn um öryggi sjófarenda fyrir hönd samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis. 

Viljum einnig vekja athygli sjófarenda og aðstandenda þeirra á umræðuþætti um öryggismál sjófarenda sem var á dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar N4 þann 12. mars 2020.