Launatengd gjöld
Innheimta félags- og sjóðagjalda
Birta lífeyrissjóður
Sundagörðum 2, 104 Reykjavík sér um alla innheimtu gjalda til VM.
Rafrænar skilagreinar eru á http://www.birta.is/, tölvupóstur skilagreinar@birta.is
Bankareikningur: 0526-26-400800, kt: 430269-0389,
Sími: 480 7000
Félagsgjald (F421)
Félagsgjald allra félagsmanna VM er 0,8% af heildarlaunum.
Styrktar- og sjúkrasjóður VM (S421)
Samkvæmt almennum kjarasamningum VM við SA ber atvinnurekanda að greiða 1% af
heildarlaunum í Styrktar- og sjúkrasjóð VM.
Fyrir vélstjóra á fiskiskipum ber útgerð að greiða 0,75% af heildarlaunum í Styrktar- og sjúkrasjóð VM.
Fyrir vélastjóra á kaupskipum ber útgerð að greiða 0,5% af heildarlaunum Styrktar- og sjúkrasjóð VM.
Í sérkjarasamningum nokkurra fyrirtækja og stofnana er samið um aðrar prósentutölur.
Orlofssjóður (O421)
Samkvæmt kjarasamningum VM ber atvinnurekanda að greiða a.m.k. 0,25% af heildarlaunum í orlofssjóð VM. Undantekningar eru í sérkjarasamningum nokkurra fyrirtækja og stofnana.
Endurmenntunargjald til IÐUNNAR – fræðsluseturs
Málm-, véltæknigreinar og vélstjórar á fiskiskipum (E460) og netagerð (E463).
Kjarasamningar vegna starfa í landi:
Greiða ber 0,5% af launum í endurmenntunargjald vegna þeirra sem starfa samkvæmt kjarasamningi VM við SA.
Kjarasamningur vélstjóra á fiskiskipum:
Greiða ber 0,5% af kauptryggingu vélstjóra í endurmenntunargjald vegna þeirra sem starfa samkvæmt kjarasamningi VM við SFS.
Fræðslusjóður VM (E421)
ATH. á einungis við um sérsamninga
Félagsmenn VM geta samið um sérstakar greiðslur í fræðslusjóð VM í persónubundnum samningum. Fyrir vélfræðinga sem starfa á rammasamningi ber vinnuveitanda að greiða 1,1% af heildarlaunum, nema samið hafi verið um annað. Í samningum við ýmis fyrirtæki og stofnanir er kveðið á um greiðslur í fræðslusjóð allt að 1,1% af heildarlaunum.
Starfsendurhæfingarsjóður – innheimtist af lífeyrissjóði
Samkvæmt kjarasamningum VM ber atvinnurekanda að greiða í Starfsendurhæfngarsjóð af starfsmönnum. Gjaldið er 0,13% og greiðist með lífeyrisiðgjöldum til viðkomandi lífeyrissjóðs en ekki með félagsgjöldum til VM.
Launatengd gjöld skv. kjarasamningi við Samband sveitarfélaga
Félagsgjald 0,8%
Orlofsheimilasjóður 0,44%
Styrktarsjóoðsgjald 1,0%
Endurmenntunarsjóður (Iðan) 0,4%
Endurhæfingarsjóður 0,13%
Námssjóður iðnaðarmanna skv. kjarasamningi við Samband sveitarfélaga
Umsýsluaðili: 2F – Fagfélögin Stórhöfða, kt.: 560896-2559.
Bankareikningur 515-26-005246
Senda skilagrein á palmi@samidn.is
Greiða á og 2,2% af öllum launum frá apríl 2024.
Greiðslumiðlun (G921) – tók gildi 1.1.2014
Á móti iðgjaldi vélstjóra greiðir útgerð 0,21% iðgjald af launum til VM. Útgerðarmaður skal standa skil á iðgjöldum samtímis greiðslum til annarra sjóða stéttarfélagsins, þ.e. um leið og reikningsuppgjör fer fram eftir lok hvers kauptryggingartímabils.