Upplýsingar um umsóknir og úthlutanir orlofshúsa
Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um bókunartímabil, reglur um umsóknir, úthlutanir og afpantanir orlofshúsa. Smellið á textann hér fyrir neðan til að upplýsingarnar opnist.
(Sjá nánar hér neðar reglur vegna afbókana og endurgreiðslna)
Hægt er að bóka allt að átta gistinætur í orlofshúsi fyrstu 6 vikurnar á hverju umsóknartímabili. Eftir 6 vikurnar fjölgar möguleikunum á að bæta við sig gistinóttum.
Helgarleiga er ávallt frá föstudegi til mánudags.
Framsal á leigusamningi er með öllu óheimil.
Hafa þarf samband við skrifstofu í síma 5400100 til að bóka íbúðina og greiða. Framvísa þarf læknisvottorði við leiguna á sjúkraíbúð.
Ef orlofseign er ekki nægilega vel þrifin við brottför að mati umsjónarmanns, er leigjanda sendur reikningur fyrir þrifum.
Greiða þarf í síðasta lagi 6. febrúar. Ef það er ekki gert fer orlofshúsið aftur í umsóknarferli, en þá eiga þeir sem ekki fengu úthlutað í fyrri umferð forgang.
10. febrúar verður opnað fyrir bókun þeirra eigna sem eftir standa.
Ath. að einungis er hægt að hafa eina bókun yfir páskatímann.
Hér fyrir neðan er tímalína vegna sumarúthlutunar 2025.
17. febrúar kl. 09.00 opnar fyrir umsóknarferlið vegna sumars 2025. Umsóknarferlið er opið til 4. mars.
5. mars fer svo fram úthlutun, þar sem hæsta punktastaða ræður úthlutun.
5. – 11. mars þarf að greiða fyrir úthlutað hús eða íbúð.
12.-16. mars verður þeim eignum úthlutað, sem ekki hefur verið greitt fyrir eða hafa verið afbókuð, til þeirra sem fengu synjun.
Þann 17. mars kl. 11.00 opnar fyrir alla í „fyrst koma fyrst fá“. Þá er opnað fyrir þær vikur sumars sem eftir verða.
Niðurstöður úthlutunar sendar í sms/tölvupósti til félagsfólks.
Félagsfólk þarf að greiða innan viku frá úthlutun.
Ath. að einungis er hægt að hafa eina bókun yfir sumartímann.
Opnað fyrir bókanir 1. nóvember 2024 kl. 9.00
Í gildi reglan "fyrstur kemur fyrstur fær".
Haust: Tímabil 22. ágúst 2025 til 2. janúar 2026.
Opnað fyrir bókanir 2. júní 2025 kl. 9.00.
Í gildi reglan "fyrstur kemur fyrstur fær".
Opnað fyrir bókanir 1. nóvember 2024 kl. 9.00.
Í gildi reglan "fyrstur kemur fyrstur fær".
Haust: Tímabil 22. ágúst 2025 til 2. janúar 2026.
Opnað fyrir bókanir 2. júní 2025 kl. 9.00.
Í gildi reglan "fyrstur kemur fyrstur fær".
Afbókun vegna veðurs eða ófærðar
Forsenda þess að fá endurgreitt vegna veðurs er að Veðurstofan hafi gefið út viðvörun eða vegir lokaðir vegna ófærðar, þá er endurgreitt að fullu.
Afbókun vegna veikinda
Endurgreitt er að fullu að frádregnu upphafsgjaldi. Félaginu er heimilt að fara fram á að leigutaki framvísi læknisvottorði. Endurgreitt er inná það kort sem leigjandi greiddi með.
Leiga er aldrei endurgreidd ef tilkynning berst eftir að leigutími hefst.
Almennar leigureglur Leigjandi skuldbindur sig til að bæta tjón sem kann að verða af hans völdum. Þetta á þó ekki við um minniháttar óhöpp eins og ef leirtau brotnar.
Leigjandi skal ganga vel um eignina, búnað þess og umhverfi. Að lokinni dvöl skal leigjandi sjá um að hver hlutur sé á sínum stað og ræsta húsið vel við brottför og skila því hreinu fyrir næsta leigjanda.
Ef reikningur er ekki greiddur eða um endurtekið brot er að ræða getur það varðað allt að þriggja ára útilokun frá leigu á orlofseignum.
Ef gæludýr eru höfð með þar sem það er ekki leyfilegt er lokað fyrir leigur á viðkomandi í eitt ár og allt að þremur árum við endurtekin brot.
Hvers konar námskeiðshald, kynningar eða annað sem getur talist til atvinnustarfsemi er með öllu óheimilt í orlofshúsum eða íbúðum félagsins.
Þrif eru EKKI innifalin í leigu á sumarhúsum VM, hvorki helgar- eða vikuleigu. Á það líka við um hlífðardýnur og sængurfatnað í sumarhúsum. Leigjanda ber að hafa viðeigndi rúmfatnað, lök, sængurver og koddaver meðferðis í sumarhúsið. Að öðrum kosti verður rukkað fyrir þríf á sængurfatnaði.
Þrif eru innifalin í leiguverði á orlofsíbúðum í Reykjavík og Akureyri. Þar fylgir einnig lín með og ber leigjanda að nota það.
VM áskilur sér rétt til að innheimta sérstaklega 30.000.- fyrir vanrækslu á þrifum í orlofshúsum og íbúðum.
Félgsmönnum ber að taka tillit til nágranna í orlofseignum VM. Lágmarka hávaða í og við eignirnar, hvort sem er sumarhús/íbúðir eða tjalsvæði. Gæta að umferð um svæðin og virða eðlilega hvíldartíma.
Höfum hugfast að orlofshúsin eru eign félagsmanna, byggð upp og viðhaldið með ykkar framlagi. Göngum því vel um eignirnar og alla muni sem þeim fylgja. Umgengni lýsir innri manni.