Orlofsuppbót

Orlofsuppbót greiðist þann 1. júní miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30.apríl eða eru í starfi fyrstu viku í maí.

Starfsmaður sem lætur af störfum á árinu skal við starfslok fá greidda orlofsuppbót miðað við starfstíma og starfshlutfall á árinu. Fullt ársstarf telst 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.

Orlofsuppbót Ár 2022 Ár 2023
Almennur samningur VM við SA um störf félagsmanna í landi kr.   53.000 kr.   56.000
Félagsmenn VM hjá Faxaflóahöfnum kr.   53.000  
Vélstjórar á kaupskipum kr.   53.000 kr.   56.000
Vélstjórar á skipum Landhelgisgæslu og Hafrannsóknarstofnunar kr.   53.000 kr.   56.000
Félagsmenn VM hjá Landsvirkjun kr. 142.226 kr. 149.400
Félagsmenn VM hjá HS-orku kr. 137.510 kr. 144.385
Félagsmenn VM hjá ÍSAL kr. 268.518 kr. 283.556
Félagsmenn VM á samningi sveitarfélaga kr.   53.000 kr.   55.700
Félagsmenn VM hjá Orkuveitu Reykjavíkur kr.   53.000 kr.   55.650
Félagsmenn VM hjá Norðurorku kr.   53.000 kr.   55.650
Félagsmenn VM hjá Orkubúi Vestfjarða kr. 198.493 kr. 218.495
Vélfræðingar á Rammasamningi kr. 142.226 kr. 149.400
https://youtu.be/8Hcp4mhN9eQ