2024
Kynningarmyndband formanns vegna kjarasamnings vélstjóra
Fréttir

Kynningarmyndband formanns vegna kjarasamnings vélstjóra

Kjarasamningur VM við SFS vegna vélstjóra felur í sér margvíslegar kjarabætur. Tímakaup vélstjóra hækkar um 36% frá síðasta samningi og um rúm 13% frá felldum samningi 2023. Tímakaupið mun hér eftir haldast í hendur við breytingar á launum vél- og iðnfræiðnga eftir þriggja ára starf, skv. kjarasamningi SA og VM.

Vélstjórar fá desemberuppbót, þeir fá fundi fyrir og eftir vertíð, ítarlegri sundurliðun á launum og lífeyrisréttindi á pari við aðra landsmenn. Veikinda- og slysaréttur þeirra sem eru ráðnir tímabundið verður á pari við fastráðna starfsmenn.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í kynningu formanns á samningnum.

Kynningarmyndband má sjá hér að neðan.

Atkvæðagreiðsla um samninginn stendur yfir. Kosningin fer fram hér.