
Námskeið í titringsmælingum
IÐAN fræðslusetur býður félagsfólki í málm- og véltæknigreinum upp á nýtt og spennandi námskeið núna í byrjun janúar. Um er að ræða námskeið í titringsmælingum, eða Vibration Analysis CAT 1. Um er að ræða námskeið sem er í heildina 32 tímar. Fullt verð er 370 þúsund krónur en fyrir meðlimi IÐUNNAR kostar aðeins 92.500 kr.
Mikilvægi titringsmælinga er þekkt og nútíma tækni býður stöðugt upp á auðveldara og virkara eftirlit með búnaði með aðstoð titringsmælinga.
Efni námskeiðsins:
- Hvað veldur titringi og hvernig finnum við ástæðu fyrir honum.
- Hvernig tökum við jafnar og marktækar mælingar.
- Hvaða búnaður og tækni hentar til eftirlits og greiningar.
- Hugtök og notkun þeirra tengd titringsmælingum.
- Hvernig eiga vinnureglur að vera þegar viðvaranir fara yfir viðmiðunarmörk.
- Læra að lesa úr mælingum og túlka niðurstöður.
Að námskeiði loknu hafa þátttakendur öðlast þekkingu á:
- Tilgangi titringsmælinga á vélbúnaði og geta gripið bilanir áður en þær verða vandamál.
- Rekstrarheild og með þeim skilningi fyrirbyggt óhentug og dýr neyðarstopp.
- Eigintíðni og leiðir til að forðast rekstur á óhentugu snúningssviði.
- Hvernig hægt er að finna mögulega orsök bilunar áður en búnaður er stöðvaður.
Námskeið er haldið af RMS – Reliability Maintenance Solutions.
Kennsla fer fram á ensku.
Gjafabréf gildir ekki á þetta námskeið