![Vilt þú starfa í sveinsprófsnefnd?](https://vm.is/wp-content/uploads/2023/12/FIT-sveinsbref_211123_J2X5000-scaled.jpg)
Vilt þú starfa í sveinsprófsnefnd?
Starfsgreinaráð kallar eftir áhugasömum einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa í sveinsprófsnefndum fyrir blikksmíði, vélvirkjun, stálsmíði og málmsuðu og veiðarfæratækni.
Í sveinsprófsnefnd skulu vera þrír iðnaðarmenn, meistarar og sveinar úr viðkomandi iðngrein, og jafnmargir til vara.
Verkefni sveinsprófsnefnda er að sjá um framkvæmd sveinsprófa í iðninni fyrir landið allt og mat á úrlausnum.
Áhugasamir hafi samband við Halldór á halldor.arnar@vm.is.