Kjarasamningur við Faxaflóahafnir samþykktur
Atkvæðagreiðslu um kjarasamning FS og VM við Faxaflóahafnir er lokið. Samningurinn var samþykktur með 93% atkvæða.
Alls greiddu 27 atkvæði með samningnum, einn greiddi atkvæði gegn samningnum og einn tók ekki afstöðu. Á kjörskrá voru 38.