
Félagsmenn á millilandaskipum samþykktu samning
Kosningu um kjarasamning VM-Félags vélstjóra og málmtæknimanna við SA vegna félagsmanna VM á millilandaskipum er lokið. Hópurinn samþykkti samninginn.
Á kjörskrá voru samtals 42. Þar af tóku 27 þátt, sem gerir 64,3% kjörsókn.
Niðurstöður vorueftirfarandi:
Já = 22 eða samtals 81.48%
Nei = 5 eða samtals 18.52%
Tek ekki afstöðu = 0