2023
Samningur við OR samþykktur
Fréttir

Samningur við OR samþykktur

Kjarasamningur VM og RSÍ við Orkuveitu Reykjavíkur samþykktur með miklum meirihluta

Í dag lauk kosningum um kjarasamninga VM og RSÍ við Orkuveitu Reykjavíkur og undirfyrirtæki.

Á kjörskrá hjá RSÍ voru 94 Þar af kusu 78 eða samtals 83% þátttaka

já sögðu 62 eða 79,49%
nei sögðu 15 eða 19,23%
auðir og ógildir 1 eða 1,28%

Á kjörskrá hjá VM voru 73 Þar af kusu 58 eða samtals 79,5% þátttaka

já sögðu 51 eða 87,93%
nei sögðu 7 eða 12,07 %

Teljast því samningarnir samþykktir í báðum tilvikum.