
Kosning og kynningar um kjarasamning VM og SFS
VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna boðar til kynningarfundar um nýgerða kjarasamninga vegna vélstjóra á fiskiskipum (VM og SFS).
Fyrri fundur í Reykjavík verður föstudaginn 17 febrúar klukkan 12:00 í sal félagsins að Stórhöfða 29 (gengið inn Grafarvogsmegin), einnig verður hægt að fylgjast með fundinum á fjarfundi. Linkur verður sendur á ykkur.
Seinni fundur í Reykjavík verður miðvikudaginn 22 febrúar klukkan 12:00 í sal félagsins að Stórhöfða 29 (gengið inn Grafarvogsmegin), einnig verður hægt að fylgjast með fundinum á fjarfundi. Linkur verður sendur á ykkur.
Fundir út á landi verða auglýstir sérstaklega.
Kosning um kjarasamningana hefst föstudaginn 17. febrúar klukkan 14:00 í gegnum heimasíðu félagsins.