Tímarit VM er komið út
Sjómannadagsútgáfa Tímarits VM er komin úr prentun. Dreifing á tímaritinu hófst í dag stendur yfir í nokkra daga.
Eins og í síðasta tölublaði er mikil áhersla á viðtöl við félagsfólk en þau draga fram hversu mikilvægum og fjölbreyttum störfum okkar fólk gegnir um landið allt. Ellefu viðtöl er að finna í blaðinu að þessu sinni.
Félagið færir viðmælendum tímaritsins sérstakar þakkir fyrir framlag sitt til útgáfunnar.
Tímaritinu verður dreift prentuðu til þeirra félaga sem skráðu sig á þar til gerðan póstlista. Eldri félagar fá einnig tímaritið sent heim. Allir félagar sem eru með skráð netfang fá tímaritið sent í tölvupósti. Það er líka aðgengilegt hér.
Í tímaritinu kennir sem fyrr ýmissa grasa, eins og ráða má af efnisyfirlitinu.
Efnisyfirlit tímaritsins
- Pistill formanns – Guðmundur Helgi Þórarinsson – 4
- Langar að blása lífi í IÐN-UNG – Viðtal við Gyðu Maríu Norðfjörð Símonardóttur – 6-7
- Enn fullt á lífeyrisnámskeiðum – 8
- Nýju húsin risin á Laugarvatni – 10-11
- Fjölmenni fagnaði 1. maí með Fagfélögunum – 12-13
- Vel sóttur aðalfundur VM – 14-15
- Hefur lært að lifa með eldgosunum – Viðtal við Kristmund Skarphéðinsson hjá HS Orku – 16-20
- Kraftmiklir kvennafundir hjá Fagfélögunum – 21
- Kristján Þórður kvaddur – 22 Golfmót iðnfélaganna – 22
- Vel heppnaður Skrúfudagur – 24-28
- Þrívíddartkænin vekur athygli – Viðtöl við Jóhannes Pál Friðriksson og Óttar Freyr Einarsson – 29-30
- „Ég festist strax eftir fyrsta túr“ – Viðtal við Sigurð Örn Guðmundsson á Lagarfossi – 32-34
- Vélfræðimenntunin var stökkpallur – Viðtal við Helga Guðbergsson hjá gagnaveri atNorth – 36-37
- Aðild VM að ASÍ rædd og greind – 38 Styrkurinn felst í samstöðunni – Grein eftir forseta ASÍ – 40-41
- Fullt út úr dyrum á Íslandsmóti iðngreina – 42-43
- Viðtal við Íslandsmeistarann í stálsuðu – Sigfús Björgvin Hilmarsson – 44
- Kaffiboðin mælast vel fyrir – 46 Viðtal við Jóhann Magnússon hjá Samherja á Dalvík – 48-49
- „Eins og að vera yfirvélstjóri á mörgum togurum“ – Viðtal við Siguróla Sigurðsson hjá Búrfellsvirkjun – 50-54
- Nám í kælitækni í undirbúning – Viðtal við Hlöðver Eggertsson – 56-57
- Gamla fréttin – kjarasamningur frá 1938 – 58
- Gefur út sýna fyrstu ljóðabók á tíræðisaldri – 60-61
- Krossgáta og þrautir – 62-63
VM færir sjómönnum og fjölskyldum þeirra hamingjuóskir í tilefni sjómannadagsins, 1. júní.