
Konur! Mætum á kvennafund 15. maí
Í framhaldi af velheppnuðum fundi 6. mars bjóðum við til næsta fundar fimmtudaginn 15. maí kl. 18:00. Samvera og samstaða skiptir máli, nýtum tækifærið og komum saman til að styrkja okkur og hafa gaman. Í ár eru 50 ár liðin síðan konur á Íslandi lögðu niður vinnu – bæði launaða og ólaunaða – og stöðvuðu samfélagið. Þrátt fyrir áratuga baráttu stendur ójöfnuður og ofbeldi enn í vegi fyrir okkur. Við höfum sýnt að við erum tilbúin að taka við keflinu.
Léttar veitingar í boði.
📍 Hvar? Húsnæði Fagfélaganna, Stórhöfða 31 (sjávarmegin), inngangur G.
📅 Hvenær? Fimmtudaginn 15. maí kl. 18:00.
Við fáum góðan gest á fundinn, Ragnhildi Vigfúsdóttur markþjálfa sem verður með fróðlegt erindi með yfirskriftinni, hugrakkir leiðtogar óskast, þar sem m.a. er komið inn á hvernig finna má kjarkinn til að sækja rétt sinn.
Skráning fer fram hér
Af hverju skiptir máli að mæta?
- Við stöndum saman
- Það er okkar tími til að halda áfram baráttunni fyrir jafnrétti.
- Við tökum pláss
- Við viljum að öll, fagkonur og fagkvár finni sig í þessu rými.
- Við eigum að gleðjast líka!
- Við viljum skapa samfélag þar sem við getum stutt hvort annað, sameinast og haft gaman.
Við viljum sjá þig! Þú átt heima í þessari baráttu með okkur!
Stelpur og stálp, konur og kvár – við þurfum að ræða þetta
Hlökkum til að sjá ykkur öll!