
Halldór hlutskarpastur á golfmóti VM
Árlegt golfmót VM var haldið föstudaginn 30.ágúst á Hlíðavelli, Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Þátttaka var dræm á mótinu vegna veðurs en keppt var í höggleik og punktakeppni.
Sigurvegari VM mótsins var Halldór Haraldsson og hlaut hann að launum hinn eftirsótta farandbikar VM.
Úrslit punktakeppninnar:
- 1.sæti Halldór Haraldsson á 32 punktum
- 2.sæti Jón Valdimarsson á 29 punktum
- 3.sæti Þorsteinn Jónsson á 29 punktum
Úrslit Höggleiksins:
- 1.sæti Halldór Þórólfsson á 79 höggum
- 2.sæti Rúnar Halldórsson á 82 höggum
- 3.sæti Sigurjón Sigmundsson á 84 höggum
Veitt voru nándarverðlaun á eftirfarandi brautum:
- Á 7. braut var Kristján Sigurðsson næstur holu og hlaut að launum helgarleigu í bústað VM (utan úthlutunnartímabila).
- Á 18. braut var Ævar Rafn Þrastarson næstur holu og hlaut að launum helgarleigu í bústað VM (utan úthlutunnartímabila)
Veitt voru verðlaun fyrir lengsta upphafshögg á braut næst holu á eftirfarandi braut:
- Á 8. braut átti Halldór Haraldsson lengsta upphafshöggið og hlaut að launum Óskaskrín.
VM óskar Halldóri og öðrum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn á mótinu. Um leið færir félagið öllum þátttakendum þakkir fyrir ánægjulegan dag.
Smellið á myndina hér fyrir neðan til að sjá fleiri myndir frá mótinu.