
Minningargrein um Örn Friðriksson
Örn Friðriksson, fyrrverandi formaður VM, er látinn, 83 að aldri. Hann fæddist árið 1941 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Guðrún Árnadóttir húsmóðir og Friðrik Sigurðsson verkamaður. Örn var borinn til grafar í dag, 26. ágúst.
Örn lærði vélvirkjun í Iðnskólanum í Reykjavík og lauk því námi árið 1962. Þaðan hélt hann til Austur-Þýskalands í tækninám. Hann fór á sjóinn eftir námið en vann svo hjá Vélsmiðjunni Héðni, Búrfellsvirkjun og Íslenska álfélaginu.
Örn gekk í Félag járniðnaðarmanna árið 1959 eða 1960, eins og hann rakti sjálfur í viðtali við Tímarit VM í desember 2019. Hann var viðloðandi verkalýðsmál í sex áratugi og virkur félagi í VM allt þar til yfir lauk.
Örn var formaður Félags járniðnaðarmanna á árunum 1989 til 2006. Árið 2007 tók hann við formennsku í VM – Félagi vélstjóra og málmiðnaðarmanna í samræmi við samkomulag sem gert var við sameiningu Félags járniðnaðarmanna og Vélstjórafélags Íslands. Örn gegndi lykilhlutverki í sameiningu félaganna tveggja og lagði þar með grunn að samstarfi sem vélstjórar og málmtæknimenn um allt land njóta nú góðs af.
Örn var annar í röð formanna sameinaðs félags auk þess að gegna um árabil mikilvægu hlutverki í Samiðn – sambandi iðnfélaga, fyrst sem varaformaður en síðar formaður. Hann gegndi líka stöðu varaforseta ASÍ um tíma.
Í viðtölum og frásögnum af sameiningu þessara félaga skín í gegn að Örn hafði brennandi áhuga á hagsmunamálum stéttarinnar. Hann var framsýnn og lausnamiðaður en fylginn sér þegar á reyndi. Hann var réttsýnn og viðræðugóður. Undirritaður kynntist Erni í undirbúningsvinnu í aðdraganda sameiningar Félags járniðnaðarmanna og Vélstjórafélags Íslands, þar sem þessir kostir hans skinu í gegn.
Í áðurnefndu viðtali frá 2019, þegar Örn hafði látið af trúnaðarstörfum fyrir félagið, lét hann eftirfarandi orð falla, sem án efa eiga jafn vel við í dag. „Nú er ég hættur. En ég fylgist með úr fjarlægð.“
Þeir eru ekki margir sem lagt hafa jafn mikið til verkalýðsbaráttu iðnaðarmanna og Örn Friðriksson. Fyrir hönd Félags vélstjóra og málmtæknimanna færi ég Erni þakkir fyrir ómetanlegt framlag hans til sameiningar félagsins og kjara- og réttindabaráttu vélstjóra og málmtæknimanna á liðnum árum og áratugum. Félagið sendir fjölskyldu og aðstandendum Arnar innilegar samúðarkveðjur.
Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM.
Á myndinni eru Grétar Þorsteinsson, fyrrverandi forseti ASÍ, Þorbjörn Guðmundsson, fyrrrverandi framkvæmdastjóri Samiðnar ásamt Erni Friðrikssyni heitnum. Mynd/Rúnar Hreinsson