
Andlát: Örn Friðriksson
Örn Friðriksson vélvirki er látinn, 83 ára að aldri.
Örn var formaður Félags járniðnaðarmanna á árunum 1989 til 2006. Árið 2007 tók hann við formennsku í VM – Félagi vélstjóra og málmiðnaðarmanna í samræmi við samkomulag sem gert var við sameiningu Félags járniðnaðarmanna og Vélstjórafélags Íslands. Hann var annar í röð formanna sameinaðs félags.
Félag vélstjóra og málmtæknimanna sendir fjölskyldu Arnar og öðrum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur.