2024
Bransadagar Iðunnar 14. – 16. maí
Fréttir

Bransadagar Iðunnar 14. – 16. maí

Bransadagar Iðunnar verða haldnir 14. – 16. maí og eru helgaðir nýsköpun í iðnaði. Á Bransadögum deila hátt í þrjátíu sérfræðingar þekkingu sinni og reynslu. Þann 15.maí verður lifandi dagskrá í boði en húsið er opið fyrir gestum allan daginn.

Á vefnum Bransadagar.is má sjá dagskrá Bransadaga en ljóst eru að flest ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Bransadögum lýkur með partý í Vatnagörðum. Partýið hefst klukkan 17:00, gestum verður boðið upp á veitingar frá Flóru, Bergur Ebbi flytur uppistand og Júlladiskó heldur uppi fjörinu. Þeir sem skrá sig og mæta eiga kost á því að vinna til glæsilegra vinninga í happdrætti!

Um er að ræða stærsta fræðsluviðburð Iðunnar fræðsluseturs frá upphafi. 

Skráning fer fram hér.