
Dagsferð til Vestmannaeyja 15. júlí 2025
Ferð eldri félaga VM verður farin 15. júlí næstkomandi.
Lagt verður af stað frá Stórhöfða, klukkan 09:00 og ekið sem leið liggur um Suðurlandsveg til Landeyjahafnar þaðan sem við siglum klukkan 12:00, með Herjólfi, til Vestmannaeyja.
Þegar til Eyja kemur förum við í stutta skoðunarferð um Heimaey, en síðan snæðum við hádegisverð hjá Einsa kalda, sem er kunnur að góðum mat og þjónustu. Á boðstólnum verður lamb.
Að hádegisverði loknum heimsækjum við sýninguna á Eldheimum, en svo er frjáls tími til að skoða sig um Vestmannaeyjabæ áður siglt verður aftur til baka klukkan 18:00.
Á heimleið verður svo gerður stuttur stanz á Hvolsvelli þar sem hægt er að fá sér svolitla hressingu áður en haldið er heim á leið.
Áætluð heimkoma um klukkan 21:00. Skráning fer fram hér fyrir neðan.
Athugið að sætafjöldi er takmarkaður.
Skráning í ferð eldri félaga 2025
"*" indicates required fields