
Útgáfa Tímarits VM í maí 2025 – Vilt þú fá blaðið heim?
Tímarit VM kemur út tvisvar á ári; fyrir jólin og fyrir sjómannadaginn. Næsta tölublað verður gefið út í lok maí og er í undirbúningi.
Til að draga úr sóun og óþarfa kostnaði verður sá háttur hafður á að tímaritið verður sent á alla félagsmenn með rafrænum hætti. Blaðið verður jafnframt aðgengilegt hér á vefnum.
Allir auglýsendur og þeir félagsmenn sem náð hafa 67 ára aldri fá prentað eintak sent heim.
Þeir sem ekki hafa náð 67 ára aldri en vilja fá prentað eintak af blaðinu inn um lúguna, geta skráð sig fyrir eintaki.
Athugið að þeir sem skráðu sig á listann síðast og fengu blað sent heim þurfa ekki að skrá sig aftur.
Uppfært: Lokað hefur verið fyrir skráningu.