2025
Málmsuðudagurinn haldinn 16. maí
Fréttir

Málmsuðudagurinn haldinn 16. maí

Málmsuðudagurinn verður haldinn með pompi og prakt þann 16. maí næstkomandi í húsakynnum Iðunnar fræðsluseturs, Vatnagörðum 20, í samstarfi við Veldix. Viðburðurinn er ætlaður öllum þeim sem vinna við málmsuðu, starfa í stálsmiðjum, vélaverkstæðum eða hafa áhuga á faginu.

Markmið dagsins er að kynna nýjustu þróun í málmsuðutækni og efla tengslanet og þekkingu fagfólks á sviðinu.

Dagskráin hefst klukkan 13:00 með fræðandi kynningu frá Veldix og fyrirlestri frá Þránni Sigurðssyni um rétta meðhöndlun gastækja. Milli kl. 14:00 og 17:00 tekur svo við skemmtun með Snjólaugu Lúðvíksdóttur, torfærubíllinn Kúrekinn verður til sýnis, og gestum boðið upp á ljúffenga hamborgara frá 2Guys og léttar veitingar.

Aðgangur að viðburðinum er ókeypis, en nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram. Allir áhugasamir eru velkomnir, óháð reynslu eða bakgrunni í faginu.

Viðburðurinn fer fram bæði innandyra og utandyra og eru gestir hvattir til að fylgja fyrirmælum starfsfólks til að tryggja öryggi allra þátttakenda.

Nánari upplýsingar um daginn hér.