2025
Styrkir til hugvitsmanna vegna öryggis á sjó
Fréttir

Styrkir til hugvitsmanna vegna öryggis á sjó

Samgöngustofa auglýsir nú eftir umsóknum um styrki til rannsókna- og nýsköpunarverkefna sem snúa að öryggi og heilsusamlegu umhverfi sjófarenda. Styrkirnir eru ætlaðir einstaklingum eða félögum sem hafa hugmyndir eða lausnir varðandi öryggi skipa, búnaðar um borð, öryggi atvinnusjómanna og farþega eða heilbrigðismál á sjó.

Heildarupphæð styrkja er allt að 2.500.000 krónur á ári og öllum er frjálst að sækja um.

Umsókn skal senda á netfangið styrkur@samgongustofa.is, ásamt útfylltu umsóknareyðublaði sem nálgast má hér.

Einnig skal fylgja greinargóð lýsing á verkefninu og greinargerð um það hvernig styrkurinn mun nýtast við framkvæmd verkefnisins.

Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2025.