
Íslandsmótið stendur yfir í Laugardalshöll – opið hús á laugardag
Íslandsmót iðn- og verkgreina stendur nú yfir í Laugardalshöll. Þar er keppt í 19 greinum. Auk þess eru 25 framhaldsskólar með kynningarbása og fjölmargar greinar eru með sýningar. Þeirra á meðal eru vélvirkjar og blikksmiðir, sem eru með glæsilega bása. Sjón er sögu ríkari.
Í gær og í dag hefur höllin verið full af nemendum í níundu og tíundu bekkjum grunnskóla af landinu öllu. Gert er ráð fyrir að um 9 þúsund nemendur heimsæki viðburðinn ‘
Vert er að benda á að á morgun, laugardaginn 15. mars, er höllin opin gestum og gangandi. Félagsfólk er hvatt til að mæta og kynna sér það sem er á boðstólnum.
Hér fyrir neðan eru myndir sem teknar voru í gær.