
Meistara í vélvirkjun vantar til að taka þátt í hæfnigreiningu
Háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti fékk Fræðslumiðstöð atvinnulífsins til að framkvæma hæfnigreiningu á starfi iðnmeistara í nokkrum iðngreinum og þar á meðal vélvirkjun.
Búið er að vinna greiningu á þverfaglegum þáttum í starfi allra iðnmeistara og nú er ætlunin að taka fyrir sértæka hæfniþætti hverrar iðngreinar.
Við óskum því eftir vélvirkjum sem lokið hafa meistaranámi og hafa reynslu af stjórnun til að taka þátt í tveim rýnifundum um sértæka hæfni sem nauðsynleg er í dag í tengslum við starf vélvirkjameistara.
Áhugasamir hafi samband við Halldór með tölvupósti á halldor.arnar@vm.is