2024
Halldór hlutskarpastur á golfmóti VM
Fréttir

Halldór hlutskarpastur á golfmóti VM

Árlegt golfmót VM var haldið föstudaginn 30.ágúst á Hlíðavelli, Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Þátttaka var dræm á mótinu vegna veðurs en keppt var í höggleik og punktakeppni.

Sigurvegari VM mótsins var Halldór Haraldsson og hlaut hann að launum hinn eftirsótta farandbikar VM. 

Úrslit punktakeppninnar:

  • 1.sæti Halldór Haraldsson á 32 punktum
  • 2.sæti Jón Valdimarsson á 29 punktum
  • 3.sæti Þorsteinn Jónsson á 29 punktum

Úrslit Höggleiksins:

  • 1.sæti Halldór Þórólfsson á 79 höggum
  • 2.sæti Rúnar Halldórsson á 82 höggum
  • 3.sæti Sigurjón Sigmundsson á 84 höggum

Veitt voru nándarverðlaun á eftirfarandi brautum:

  • Á 7. braut var Kristján Sigurðsson næstur holu og hlaut að launum helgarleigu í bústað VM (utan úthlutunnartímabila).
  • Á 18. braut var Ævar Rafn Þrastarson næstur holu og hlaut að launum helgarleigu í bústað VM (utan úthlutunnartímabila)

Veitt voru verðlaun fyrir lengsta upphafshögg á braut næst holu á eftirfarandi braut:

  • Á 8. braut átti Halldór Haraldsson lengsta upphafshöggið og hlaut að launum Óskaskrín.

VM óskar Halldóri og öðrum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn á mótinu. Um leið færir félagið öllum þátttakendum þakkir fyrir ánægjulegan dag.

Smellið á myndina hér fyrir neðan til að sjá fleiri myndir frá mótinu.