2024
Lágmarksorlof er 25 virkir dagar
Fréttir

Lágmarksorlof er 25 virkir dagar

Athygli er vakin á að lágmarksorlof iðn- og tæknifólks eru 25 virkir dagar, eða orlofslaun upp á 10,64%.

Starfsaldur í grein

Starfsmaður sem hefur starfað í 5 ár í sömu starfsgrein á rétt á orlofi í 26 daga eða orlofslaunum sem nema 11,11%. Starfsmaður sem hefur starfað í 10 ár í sömu starfsgrein á rétt á 28 daga orlofi eða orlofslaunum sem nema 12,07%.

Starfsaldur hjá sama fyrirtæki

Starfsmaður sem hefur starfað hjá sama fyrirtæki í 5 ár á rétt á orlofi í 28 daga eða orlofslaunum sem nema 12,07%. Starfsmaður sem hefur starfað hjá sama fyrirtæki í 10 ár á rétt á orlofi í 30 daga eða orlofslaunum sem nema 13,04%. Athugið að um lágmarksrétt er að ræða. Þetta kemur ekki í veg fyrir að samið sé um betri kjör.