![Orlofsuppbót greiðist 1. júní](https://vm.is/wp-content/uploads/2024/05/orlofsuppbotRSI2024.jpg)
Orlofsuppbót greiðist 1. júní
Orlofsuppbót greiðist þann 1. júní, miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum, m.v. 30. apríl, eða eru í starfi fyrstu viku í maí. Orlofsuppbótin er 58.000 krónur árið 2024.
Fullt starf telst í þessu sambandi 45 unnar vikur eða meira, fyrir utan orlof.
Ekki hika við að hafa samband við kjaradeild Fagfélaganna, ef frekari upplýsinga er óskað. Síminn er 5400100.