Kaffi eldri félagsmanna á miðvikudag
VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna býður heldri félagsmönnum vanalega til kaffisamsætis á Stórhöfða 29-31 síðasta fimmtudag í mánuði hverjum. Að þessu sinni verður sú breyting að kaffið verður á miðvikudag, 27. mars.
Kaffið stendur yfir á milli klukkan 13 og 15 og er kjörið tækifæri til notalegrar samverustundar.
Athugið að gengið er inn Grafarvogsmegin.