2024
Á þriðja hundrað sátu fyrsta kynningarfundinn
Fréttir

Á þriðja hundrað sátu fyrsta kynningarfundinn

Um tvöhundruð og fimmtíu manns sátu fyrsta kynningafund Fagfélaganna, sem fram fór á Grand hótel í Reykjavík í hádeginu í dag, þriðjudaginn 12. mars 2024. Um 150 manns voru í salnum en aðrir 100 fylgdust með á fjarfundi.

Á fundinum kynnti Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Fagfélaganna, samningana við Samtök atvinnulífsins en atkvæðagreiðsla hófst klukkan 12:30 í dag. Hún stendur yfir til klukkan 14:00 þriðjudaginn 19. mars. Að erindi loknu svaraði Kristján Þórður spurningum úr sal. Hér fyrir neðan má sjá kynningu Fagfélaganna.

 

 

Upplýsingar um næstu fundi má sjá hér.

Samningurinn í heild er hér.