
Kynningarfundir og kosning vegna kjarasamnings vélstjóra – hlekkur
Kynningarfundir vegna nýundirritaðs kjarasamnings VM og SFS, vegna vélstjóra á fiskiskipum, verða sem hér segir:
- Þriðjudagur 27. febrúar klukkan 17:00
- Fimmtudagur 29. febrúar klukkan 17:00
- Föstudagur 1. mars klukkan 17:00 (https://us02web.zoom.us/j/84335542398)
Fundirnir verða haldnir á Stórhöfða 29-31 en gengið er inn Grafarvogsmegin. Þeir sem ekki eiga heimangengt á fundina geta nýtt hlekki sem sendir verða öllum á kjörskrá áður en þeir hefjast.
Auk þessa er hægt að óska eftir fundi með formanni félagsins, hvort sem er á fjarfundi eða á hefðbundnum fundi, ef einhverjir hópar vilja fá kynningu á kjarasamningi eða fá svör við spurningum sem snúa að samningnum.
Þeir sem það vilja geta haft samband við skrifstofur félagsins.
Glærukynning vegna kjarasamnings VM og SFS
Atkvæðagreiðslan hefst
Atkvæðagreiðsla vegna kjarasamnings VM og SFS, vegna vélstjóra á fiskiskipum hefst á morgun, þriðjudag, klukkan 12:00. Kosningin stendur yfir í eina viku, eða til klukkan 15:00, þriðjudaginn 5. mars.
VM hvetur alla til að kynna sér efni samningsins og taka þátt í kosningunni.