Skrifað undir kjarasamning fyrir hönd sjómanna
VM og SVG skrifuðu í Karphúsinu í morgun undir kjarasamning við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi vegna sjómanna. Samningurinn er að nokkru leyti frábrugðinn þeim samningi sem félagsmenn í Sjómannasambandi Íslands samþykktu í atkvæðagreiðslu nýverið.
Vinna við að útbúa kynningarefni vegna samningsins er nú í fullum gangi. Hann verður kynntur með ítarlegum hætti eins fljótt og auðið er.
Fyrirhugað er að atkvæðagreiðsla hefjist næstkomandi þriðjudag.