
Meistaradagur Fjölbrautarskóla Suðurnesja
Meistaradagur Fjölbrautarskóla Suðurnesja verður haldinn þann 29. febrúar næstkomandi. Á tímabilinu frá 11:30 til 13:30 munu verknámskennarar FS halda meistaradag þar sem meisturum og forsvarsmönnum fyrirtækja á Suðurnesjum er boðið að kynna sér starfið sem fram fer í skólanum.
Kynning mun fara fram á hársnyrtiiðn, húsasmíði, rafvirkjun og vélstjórn.