
Opið á ný fyrir leigu orlofshúsa
Í dag hefur verið opnað fyrir leigu á þeim orlofseignum félagsins sem Grindvíkingar hafa ekki þurft á að halda. Félagsfólk getur fyrir vikið bókað orlofshús félagsins á nýjan leik.
Nánari upplýsingar um húsin sem eru í boði má finna á Orlofshúsavefnum.
VM færir félagsfólki þakkir fyrir auðsýndan skilning á þeim aðstæðum sem uppi eru.