Vilt þú starfa í sveinsprófsnefnd?
Starfsgreinaráð kallar eftir áhugasömum einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa í sveinsprófsnefndum fyrir blikksmíði, vélvirkjun, stálsmíði og málmsuðu og veiðarfæratækni.
Í sveinsprófsnefnd skulu vera þrír iðnaðarmenn, meistarar og sveinar úr viðkomandi iðngrein, og jafnmargir til vara.
Verkefni sveinsprófsnefnda er að sjá um framkvæmd sveinsprófa í iðninni fyrir landið allt og mat á úrlausnum.
Áhugasamir hafi samband við Halldór á halldor.arnar@vm.is.