2023
Iðnaðarsýningin hefst á fimmtudag
Fréttir

Iðnaðarsýningin hefst á fimmtudag

Iðnaðarsýningin verður haldin í Laugardalshöll dagana 31. ágúst – 2. september 2023. Helstu svið sýningarinnar verða mannvirki, orka, innviðir, hönnun og vistvænar lausnir.

Sýningin er opin á milli klukkan 14 og 19 fimmtudaginn 31. ágúst, á milli 10 og 18 á föstudag og 10 og 17 á laugardag.

Á vefnum idnadarsyningin.is er bent á að iðnaður sé mjög stór hluti hagkerfis okkar. Samkvæmt hagtölum skapi hann rúmlega um fimmtung landsframleiðslunnar. Þá sé er aðeins rætt um beint framlag til landsframleiðslunnar. Hið óbeina framlag sé mun meira.

„IÐNAÐARSÝNINGIN 2023 spannar hið víða svið iðnaðar hvort sem er á sviði mannvirkja, orku, framleiðslu, hugverka eða grænna lausna svo eitthvað sé nefnt. Slík sýning á erindi við landsmenn hvort sem þeir starfa eða tengjast iðnaðarsviðinu.“

Iðnaðarsýningin, sem sýningarfyrirtækið Ritsýn sf. stendur fyrir, er unnin í samstarfi við Samtök iðnaðarins.

Gríptu boðsmiða fyrir 2 hér að neðan (prentaðu pdf skjalið eða sýndu í síma á staðnum).