2023
Skrifað undir kjarasamning við Faxaflóahafnir
Fréttir

Skrifað undir kjarasamning við Faxaflóahafnir

Í gær, fimmtudag, var skammtímakjarasamningur milli Faxaflóahafna annars vegar og FS Félags skipstjórnarmanna og VM Félags vélstjóra og málmtæknimanna hins vegar undirritaður.

Sameiginlegur kynningarfundur stéttarfélaganna fer fram í fundarsal Faxaflóahafna á fjórðu hæð föstudaginn 25. ágúst nk. kl. 13:00.
Rafræn atkvæðagreiðsla hefst kl. 15:00 þann dag og stendur í þrjá sólarhringa. Úrslit verða kynnt kl. 16:00 mánudaginn 28 ágúst.
Faxaflóahafnir munu svo boða vinnuhópinn á fund í framhaldinu.