Strandveiðimenn efna til mótmæla vegna stöðvunar
Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar, mun halda tölu á mótmælum strandveiðimanna sem boðað hefur verið til á Austurvelli á laugardaginn. Strandveiðimenn mótmæla þar stöðvun veiðanna, en síðasti dagur strandveiða var 11. júlí að þessu sinni.
Í færslu á síðu Strandveiðifélags Íslands leggur formaðurinn, Kjartan Páll Sveinsson, til að sjómenn mæti í sjóstökkum og leggi sig fram um að tryggja mannsæmandi strandveiðikerfi. Hann biður menn að forðast að persónugera vandann og leggja heldur áherslu á meginsjónarmiðið.
Smábátasjómenn hyggjast hittast fyrir framan Hörpu á hádegi þaðan sem þeir munu ganga niður á Austurvöll. Dagskráin þar er eftirfarandi:
- KK tekur nokkur vel valin lög
- Kári Stefánsson heldur tölu
- Kristján Torfi og trillukallakórinn spila