2023
Sumarlokun skrifstofu
Fréttir

Sumarlokun skrifstofu

Skrifstofur VM og Húss Fagfélaganna verður lokuð frá 24. júlí til 4. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks. Skrifstofan verður opnuð aftur þriðjudaginn 8. ágúst kl 8:00.

Kjaramál: Í neyðartilvikum er hægt að senda tölvupóst til kjaramal@fagfelogin.is sé um kjaramál að ræða.

Orlofshús: Ef um er að ræða brýna aðstoð vegna orlofshúsa vinsamlegast sendið tölvupóst til orlofsmal@fagfelogin.is. Varðandi almennar fyrirspurnir vekjum við athygli á þeim upplýsingum sem fram koma á heimasíðunni og í leigusamningi þar sem m.a. má finna símanúmer umsjónarmanns.

Styrkir og sjúkradagpeningar: Umsóknir um styrki og sjúkradagpeninga þurfa að berast í síðasta lagi 11. júlí. Styrkir verða greiddir út þriðjudaginn 18. júlí og sjúkradagpeningar greiðast út mánudaginn 31. júlí. Umsóknir sem berast eftir 11. júlí verða greiddar út mánudaginn 14. ágúst.

Veiðikort og Útilegukort: Síðasti dagur til að kaupa Veiðikort og Útilegukort á skrifstofu fyrir sumarlokun er föstudagurinn 21. júlí, að öðrum kosti þarf að kaupa kortin á netinu, en þá þarf að senda þau í pósti sem getur tekið nokkra daga að berast.