Ráðstefna um öryggi í samgöngum
Á réttri leið, ráðstefna um öryggi í samgöngum, verður haldin þriðjudaginn 6. júní nk. frá kl. 13:00-16:00 í Veröld – húsi Vigdísar. Markmiðið með ráðstefnunni er að miðla þeirri þekkingu og breytingum sem hafa átt sér stað undanfarna áratugi og hvernig hægt er að læra af reynslunni, bæði hér heima og erlendis. Öll eru velkomin á ráðstefnuna en áhugasöm eru beðin um að skrá þátttöku sína.
Innviðaráðuneytið stendur fyrir viðburðinum.
Ráðstefnan er haldin til að heiðra Ragnhildi Hjaltadóttur fyrir framlag hennar til öryggis í samgöngum. Ragnhildur lét nýverið af störfum sem ráðuneytisstjóri innviðaráðuneytisins eftir 40 ára farsælan feril hjá Stjórnarráðinu. Boðið verður upp á léttar veitingar eftir að ráðstefnunni lýkur. Fundarstjóri er Milla Ósk Magnúsdóttir, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra.
Dagskrá:
13:00 Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
Á réttri leið – öryggi í samgöngum
13:20 Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir á LSH
Samgöngur – öryggi og heilsa
13:40 Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna
Áskoranir, tækifæri og saga Slysavarnaskóla sjómanna.
14:00 Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri
Öryggi í samgöngum – samstarf og árangur
14:20 Hlé
14:40 Michael Kingston, ráðgjafi hjá IMO um öryggi fiskiskipa og málefni norðurslóða
Öryggi á sjó, dæmisagan Ísland
15:00 Björn Guðmundsson, öryggisstjóri Icelandair
Hvað er ásættanleg áhætta? Þróun öryggismála í alþjóðaflugi
15:20 Bergur Ebbi Benediktsson, rithöfundur og fyrirlesari
15:40 Ragnhildur Hjaltadóttir, fyrrv. ráðuneytisstjóri innviðaráðuneytisins
15:50 Samantekt
16:00 Léttar veitingar