2023
Skrifað undir vegna vélstjóra á ferðaþjónustubátum
Fréttir

Skrifað undir vegna vélstjóra á ferðaþjónustubátum

Í gær, 18. apríl, skrifaði VM undir kjarasamning vegna vélstjóra sem starfa á ferðaþjónustubátum. Samningurinn er svipaður öðrum samningum sem samið hefur verið um á almennum vinnumarkaði.
Kosið verður um samninginn rafrænt en atkvæðagreiðsla fer fram í gegnum mínar síður.  Atkvæðagreiðsla hefst föstudaginn 21. apríl klukkan 12:00 og stendur til 26. apríl klukkan 12:00.
Kynningarfundur verður mánudaginn 24. apríl klukkan 12:00 að Stórhöfða 29-31 (gengið inn Gravarvogsmegin) og í gegnum fjarfund. Félagsmenn fá sendan hlekk á fundinn.