2023
Kynning á námi til kennsluréttinda fyrir iðnmeistara
Fréttir

Kynning á námi til kennsluréttinda fyrir iðnmeistara

Hér að neðan er auglýsing vegna kynningar á námi til kennsluréttinda fyrir iðnmeistara, sem fram fer þriðjudaginn 18. apríl frá klukkan 17:15 til 17:45.

Kynningin fer fram á fjarfundi, í gegn um Zoom.   

Ágæti iðnmeistari Þriðjudaginn 18. apríl kl. 17:15 til 17:45 verður kynning á námi til kennsluréttinda fyrir iðnmeistara.

Kynningin verður haldin sem fjarfundur á Zoom, https://us02web.zoom.us/j/3307042054

Til þess að geta haldið í við ört vaxandi þörf iðnmenntaðra einstaklinga innan samfélagsins er mikilvægt að til staðar séu kennarar sem geti kennt þær faggreinar.

Elsa Eiríksdóttir, deildarstjóri faggreinakennslu á menntavísindasviði og dósent við Háskóla Íslands mun kynna námið.

Fyrirkomulag námsins verður kynnt og meðal annars farið yfir þann möguleika á að stunda námið meðfram vinnu. Á fundinum gefst iðnmeisturum kostur á því að afla sér frekari upplýsinga um námið og  spyrja spurninga. Hefur þú áhuga á að kenna þína iðngrein?

Komdu á fundinn og kynntu þér málið!