
Upplýsingasíða á ellefu tungumálum
Labour.is er ný upplýsingasíða á vegum ASÍ fyrir launafólk sem er nýtt á íslenskum vinnumarkaði. Síðan er á 11 tungumálum; ensku, pólsku, litháísku, lettnesku, spænsku, rúmensku, arabísku, úkraínsku, rússnesku, farsi (persnesku) og íslensku.
Á síðunni má finna allar almennar upplýsingar um helstu réttindi á vinnumarkaði. Þá er fólki vísað á stéttarfélagið sitt fyrir nánari upplýsingar og aðstoð.