
Fagfélögin hvetja félagsfólk að ganga ekki í störf annarra
Tilkynning frá Fagfélögunum:
Fagfélögin sem Byggiðn, Rafiðnaðarsamband Íslands, MATVÍS og VM – félag vélstjóra og málmtæknimanna standa að hvetja félagsfólk sitt er starfar á hótelum til að virða verkfall Eflingar í hvívetna.
Þannig beinir félagið tilmælum til félagsfólks að ganga ekki í störf Eflingarfólks og ef einhver vafi leikur á að hafa þá samband við kjaradeild Fagfélaganna.