![Skrifað undir kjarasamning við Kerfóðrun](https://vm.is/wp-content/uploads/2022/12/kerfodruh.jpg)
Skrifað undir kjarasamning við Kerfóðrun
Í dag miðvikudaginn 12. janúar skrifðu stéttarfélögin FIT, VM og Hlíf undir kjarasamning fyrir hönd félagsmanna sinna við Kerfóðrun ehf.
Samningur stéttarfélaganna og Kerfóðrunar er í takt við aðra sambærilega kjarasamninga sem gerðir hafa verið undanfarin ár þar sem lögð er áhersla á að verja kaupmátt og stytta vinnuvikuna.
Samningurinn verður kynntur fyrir starfsmönnum Kerfóðrunar í vikunni og fer svo í atkvæðagreiðslu.