2023
Kjarakönnun VM 2023
Fréttir

Kjarakönnun VM 2023

Kjarakönnun meðal félagsmanna VM sem starfa í landi er hafin.

Kjarakannanir eru mikilvægur liður í baráttu félagsins fyrir kjörum félagsmanna en niðurstöðurnar eru mikilvægar fyrir félagsfólk sem getur út frá niðurstöðum borið saman sín laun við laun annarra í sambærilegum störfum.

Til að niðurstöðurnar séu sem áreiðanlegastar er nauðsynlegt að sem flest taki þátt. Þín þátttaka skiptir því sköpum. Það tekur örfáar mínútur að svara könnuninni.

Þeir félagsmenn sem lentu í úrtaki hafa fengið netpóst með slóð á könnunina. Í könnuninni er spurt um laun í septembermánuði 2023 og ýmsar bakgrunnsupplýsingar. Þátttakendur þurfa því að hafa launaseðil fyrir september mánuð við hendina.

Netpóstur á íslensku, ensku og pólsku var sendur á úrtakið. Í póstinum er hlekkur á könnunina á því máli sem þátttakendur velja að lesa póstinn.

Nöfn fimm þátttakenda verða dregin út þegar könnunin verður yfirstaðin. Þeir munu vinna helgardvöl í orlofshúsum félagsins, utan sumar- og páskatímabila, að eigin vali.