2023
Skrifað undir þrjá kjarasamninga
Fréttir

Skrifað undir þrjá kjarasamninga

VM skrifaði undir þrjá kjarasamninga í dag, föstudaginn 21. apríl. Skrifað var undir samninga við sveitarfélögin, Landhelgisgæsluna og Hafrannsóknarstofnun.

Allir samningarnir verða kynntir fyrir félagsfólki í næstu viku og munu kosningar um þá einnig fara fram í næstu viku. Við hvetjum félagsfólk okkar til þess að fylgjast vel með heimasíðu VM og uppfæra netföng sín á „mínum síðum“ til þess auðvelt sé að nálgast upplýsingar um efni samningana og kosningarnar.