2024
Vilt þú starfa í sveinsprófsnefnd fyrir rennismíði?
Fréttir

Vilt þú starfa í sveinsprófsnefnd fyrir rennismíði?

Starfsgreinaráð kallar eftir áhugasömum einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa í sveinsprófsnefndum fyrir rennismíði.

Í sveinsprófsnefnd skulu vera þrír iðnaðarmenn, meistarar og sveinar úr viðkomandi iðngrein, og jafnmargir til vara.

Verkefni sveinsprófsnefnda er að sjá um framkvæmd sveinsprófa í iðninni fyrir landið allt og mat á úrlausnum.

Áhugasamir hafi samband við Halldór á halldor.arnar@vm.is.