Viðburðir
Upplýsingasíða um aðalfund VM 2024
Viðburðir

Upplýsingasíða um aðalfund VM 2024

Aðalfundur VM verður haldinn fimmtudaginn 11. apríl, klukkan 17:00. Hann fer fram í Húsi Fagfélaganna, Stórhöfða 29-31. Gengið er inn í fundarsalinn Grafarvogsmegin (neðan við húsið). Munið að skrá ykkur á fundinn.

Á þessari síðu verða allar upplýsingar sem snúa að aðalfundinum birtar. Dagskrá fundarins er hér að neðan.

Unnið hefur verið að því að endurskrifa hluta af lögum félagsins. Að uppistöðu til er um að ræða orðalagsbreytinigar á lögum félagsins en nákvæma útlistun og rökstuðning fyrir hverri breytingu má finna í skjalinu hér fyrir neðan. Mikilvægt er að fundargestir kynni sér lagabreytingarnar gaumgæfilega áður en fundurinn fer fram.

Dagskrá aðalfundar

1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar félagsins og sjóða.
3. Ákvörðun um löggilta endurskoðendur.
4. Ákvörðun stjórnarlauna.
5. Lagabreytingar og reglugerðir.
6. Lýst kjöri stjórnar.
7. Kjör í nefndir og stjórnir sjóða.
8. Kjör kjörstjórnar.
9. Önnur mál.

Mjög mikilvægt er að allir fundargestir skrái sig á fundinn.